FORSÍÐA  |  UM HAFFARA   |  TÍMAÁÆTLUN  |  VERÐSKRÁ  |   FRÉTTIR  |   MYNDIR  |  TENGLAR  |   HAFA SAMBAND 

 

Sjóstangveiði frá Akureyri

Haffari býður upp á sjóstangveiði og útsýnisferðir um innanverðan Eyjafjörð. Siglt er frá Torfunesbryggju á Akureyri sem er staðsett við miðbæinn.
Á sumrin eru boðið upp á skipulagðar áætlunarferðir, auk þess sem hægt er að bjóða upp á margskonar sérferðir að óskum hvers og eins. 
Á veturnar er hægt að semja um sérferðir hvort sem er á veiðum á fiski eða fugli. 
Allur búnaður til veiða á fiski er innifalinn í verði og fiskurinn sem veiddur er geta veiðimenn tekið með sér. Við ráðleggjum fólki að hafa hlýjan klæðnað meðferðis.

FRÉTTIR

 
  17.7.2010 10:41:38
Ánægðir farþegar

Það er alltaf gaman að fá jákvæðar umsagnir og myndir frá farþegum. Hér er eitt slíkt sem við fengum um daginn: We had a wonderful time fishing with your company recently (6/28/2010). In particular, my wife Pam had a grand experience catching 3 fish at a time! You asked me to forward you the photo, and here it is. She sure has a big grin! Við óskum þeim alls hins besta.

Meira >>  
 
 
  14.7.2010 10:11:08
Áhöfn Kristina Regina

Hluti af áhöfn skemmtiferðaskipsins Kristina Regina kom í ferð með okkur í gær, en þetta er í þriðja skiptið sem þeir koma á sjóstöng á meðan skipið stoppar hér á Akureyri. Þetta eru hressir karlar og veiddu vel þ.a. steinbít, makríl, ufsa, lýsu, ýsu og þorsk. Nokkrar myndir komnar inn.

Meira >>  
 
 
  5.6.2010 21:13:02
Sjómannadagurinn

Á morgun sjómannadag ætlar Haffari að taka þátt í hópsiglingu Húna og smábáta um Pollinn. Lagt verður af stað frá Torfunesbryggju kl. 13. Siglt verður að smábátahöfninni þar sem fjöldi smábáta bætast í hópinn og siglt verður inn á Pollinn og að Torfunesbryggju. Í fyrra var þessi sigling vel sótt og skemmtileg stemmning myndaðist. Allir eru velkomnir að koma sigla með okkur á meðan pláss leyfir.

Meira >>  
 





     

 

     FUGL OG FISKUR

 

       

 


Haffari ehf | Munkaþverárstræti 30 | 600 Akureyri | Sími: 860 3890 | sigurdur@haffari.is

Tónaflóð veflausnir