FORSÍÐA  |  UM HAFFARA   |  TÍMAÁÆTLUN  |  VERÐSKRÁ  |   FRÉTTIR  |   MYNDIR  |  TENGLAR  |   HAFA SAMBAND 

Þú ert hér > Forsíða > Um Haffara

Um Haffara

Fyrirtækið Haffari var stofnað af Sigurði Kristjánssyni og Sigþóru Baldursdóttur 1. ágúst 2006. 

  Sigurður         Sigþóra

Sigurður er menntaður stýrimaður og starfaði sem stýrimaður og skipstjóri til margra ára.  Trilluútgerð á Eyjafirði hefur verið hans áhugamál lengi.  Með kaupunum á Haffara EA 133, 17 tonna eikarbáti, varð að veruleika gamalla draumur - að bjóða öðrum upp á þá einstöku upplifun að stunda sjóstangaveiði á Pollinum.

Sigþóra er menntuð leikskólakennari og hefur sótt meira til fjalla en sjós hingað til. Þegar hún kynnist þessari afþreyingu sem sjórinn bíður upp á hafa fjöllin fengið að bíða. Hún telur að svipuð tilfinning verði til þegar siglt er frá landi og horft til lands, eins og að labba upp á fjöll og horfa yfir nærsveitir. Einhvers konar frelsistilfinning sem gefur manni ráðrúm til að sjá hlutina frá öðru sjónarhóli og meta þá á annað hátt.  

Í júní 2007 var hafist handa við gagngerar endurbætur og breytingar á bátnum en hann hafði verið notaður sem fiskiskip fram til þessa. Samhliða því þurfti að afla öll tilskilinna leyfa til farþegaflutninga sem eru mörg og margbrotin. Margir lögðu þar hönd á plóginn og eiga Hlynur, Bogga og Júlía þakkir skildar fyrir að koma verkinu af stað. Í júnílok var Haffari tilbúinn í slaginn og séra Eiríki Jóhannssyni var boðið í sjóferð út á Poll í blíðskaparveðri og fenginn til að blessa fleytið og starfsemi þess. Formlegar ferðir hófust 1. júlí 2007.

 

 

 

 

 

 

                                                   

Sumarið 2007 færði eigendum góða reynslu og yfirsýn um hvernig best sé að haga starfsemi af þessu tagi. Nokkuð góð aðsókn var í ferðirnar af ferðamönnum og heimamönnum. En það kom eigendum skemmtilega á óvart hve fjölskyldufólk héðan af Akureyri var duglegt að nýta sér þessa þjónustu.  Vinnustaðir hafa einnig nýtt sér þessa þjónustu fyrir óvissuferðir, sjóstangveiðikeppni eða hópeflis af einhverju tagi.

Þessi afþreying er mjög fjölskylduvæn og börnin hafa ekki síður ánægju af siglingunni og veiðunum en fullorðnir. Einnig er þetta tilvalin leið fyrir fólk sem hefur í mörg horn að líta, til að hlaða batteríin og endurheimta orku.



Til baka



Haffari ehf | Munkaþverárstræti 30 | 600 Akureyri | Sími: 860 3890 | sigurdur@haffari.is