12.8.2010 21:33:36
|
Versló 2010 - Sparitónleikar
|
|
 |
| Um verslunarmannahelgina mynduðu smábátaeigendur skemmtilega stemmningu á Pollinum á meðan Sparitónleikar - Einnar með öllu fóru fram. Haffari tók þátt í því og nú eru komnar inn myndir frá þeirri skemmtilegu kvöldstund. |
Meira >> |
| |
 |
17.7.2010 10:41:38
|
Ánægðir farþegar
|
|
 |
| Það er alltaf gaman að fá jákvæðar umsagnir og myndir frá farþegum. Hér er eitt slíkt sem við fengum um daginn:
We had a wonderful time fishing with your company recently (6/28/2010). In particular, my wife Pam had a grand experience catching 3 fish at a time! You asked me to forward you the photo, and here it is. She sure has a big grin!
Við óskum þeim alls hins besta. |
Meira >> |
| |
 |
14.7.2010 10:11:08
|
Áhöfn Kristina Regina
|
|
 |
| Hluti af áhöfn skemmtiferðaskipsins Kristina Regina kom í ferð með okkur í gær, en þetta er í þriðja skiptið sem þeir koma á sjóstöng á meðan skipið stoppar hér á Akureyri. Þetta eru hressir karlar og veiddu vel þ.a. steinbít, makríl, ufsa, lýsu, ýsu og þorsk. Nokkrar myndir komnar inn. |
Meira >> |
| |
 |
5.6.2010 21:13:02
|
Sjómannadagurinn
|
|
 |
| Á morgun sjómannadag ætlar Haffari að taka þátt í hópsiglingu Húna og smábáta um Pollinn. Lagt verður af stað frá Torfunesbryggju kl. 13. Siglt verður að smábátahöfninni þar sem fjöldi smábáta bætast í hópinn og siglt verður inn á Pollinn og að Torfunesbryggju. Í fyrra var þessi sigling vel sótt og skemmtileg stemmning myndaðist.
Allir eru velkomnir að koma sigla með okkur á meðan pláss leyfir. |
Meira >> |
| |
 |
3.6.2010 22:32:09
|
Nýr starfsmaður Haffara
|
|
 |
| Haffari hefur ráðið til sín nýjan starfsmann Guðjón Svan Hermannsson sem mun leysa Sigurð af í sumar. Guðjón er stýrimaður að mennt og hefur verið til sjós til margra ára mest frá Flateyri þaðan sem hann er ættaður.
Haffari bíður Guðjón velkominn til starfa. |
Meira >> |
| |
 |
1.6.2010 21:28:50
|
1. júní - áætlunarferðir hafnar.
|
|
 |
| Í dag 1. júní hófust áætlunarferðir Haffara á sjóstöng hér frá Akureyri. Þetta er fjórða starfsár Haffara og siglum við bjartsýn inn í sumarvertíðina. Í vor var báturinn tekinn til gagngerar endurbóta, útlitslega séð og skartar nú aftur upprunanlega eikarlitnum. |
Meira >> |
| |
 |
18.5.2010 18:36:25
|
Sjóstangveiðimót EFSA lokið
|
|
 |
| Nú er sjóstangveiðimóti EFSA á Dalvík lokið og tókst ljómandi vel. Keppt var í ýmsum greinum bæði á milli einstaklinga, hópa, landa og báta. Bátakeppnin var þannig að stærstu bátarnir eins t.d. Níels Jónsson og Húni II voru með tvö lið A og B. Liðin voru því 18 á 11 bátum. Haffari var í 6 sæti af þessum 18 liðum og eru ánægðir með þann árangur. |
Meira >> |
| |
 |
9.5.2010 21:51:56
|
Evrópumót í sjóstangveiði
|
|
 |
| Nú stendur yfir Evrópumót í sjóstangveiði á Dalvík. Þar eru á annað hundrað keppendur frá 13 löndum að spreyta sig og eru það 11 bátar sem siglt er á, þar af eru 9 eikarbátar. Haffari EA 133 er einn af þeim og formleg keppni hefst á mánudaginn 10. maí en tvær æfingaferðir voru farnar fyrir helgi. |
Meira >> |
| |
 |
14.2.2010 14:26:57
|
Verðskrá fyrir sumarið 2010
|
|
 |
| Þá er að fara að huga að fyrirkomulagi næsta sumars. Haffari fyrirhugar að vera með tvær áætlunarferðir á dag kl.15:30 og kl. 20:00 frá 01. júní til loka ágústs. Verðskráin er komin hér inn. Svo er alltaf hægt að athuga með ferðir utan þess tíma - senda fyrirspurn hér af síðunni eða senda tölvupóst á sigurdur@haffari.is. |
Meira >> |
| |
 |
26.12.2009 20:55:24
|
Gleðileg jól !
|
|
 |
| Við óskum öllum viðskiptavinum og velunnurum okkar gleðilegra jóla og gæfuríks komandi árs. Þökkum fyrir árið sem er að líða. Við höldum inn í nýtt ár full bjartsýnis og vonumst til að sjá ykkur sem flest á sumri komandi. |
Meira >> |
| |
 |